GLS - ráðstefnan

VEITTU FORYSTU
ÞAR SEM ÞÚ ERT

7. NÓV 2025

GLS ráðstefnan

Global Leadership Summit er uppspretta fyrir ferskar hugmyndir, hagnýt skref, þjónandi forystu og hjartnæma uppörvun. Ráðstefnan leitast við að efla þig, vera vettvangur framtíðarsýnar, miðla krafti til umbreytinga, hrinda hindrunum úr vegi. Hér færðu innsýn í reynslu og innsæi leiðtoga frá heimsklassa fyrirlesurum á stórum skjá og íslenskt efni á sviði. Þú kemur með hópnum þínum, kynnist fólki, og spjallar og skráir hjá þér góðar hugmyndir. Þú munt heyra frá prestum, frumkvöðlum, viðskiptahugsuðum, og síðast en ekki síst sögur frá venjulegu fólki sem tókst á við áskoranir. GLS vill hjálpa þér til betri forystu – hvar sem þú hefur áhrif.
GLS byggir á gildum Jesú Krists, eins merkasta leiðtoga sem uppi hefur verið.
Þetta er GLS !

FYRIRLESARAR RÁÐSTEFNUNNAR

Craig Groeschel
Craig GroeschelPrestur og stofnandi Life.Church
Craig Groeschel, sem er alþjóðlega viðurkenndur sem leiðtogi leiðtoga, er stofnandi og aðalprestur Life.Church, en kirkjan hefur þrisvar sinnum hlotið Gallup Exceptional Workplace verðlaunin. Life.Church er þekkt fyrir nálgun sína á nýjustu tækni í þágu trúboðs og er höfundur YouVersion appanna - sem hafa verið sett upp á næstum milljarði einstakra tækja um allan heim. Hann er gestgjafi hins vinsæla „Craig Groeschel Leadership Podcast“ og er metsöluhöfundur samkvæmt New York Times. Nýjasta bók hans er „The Benefit of Doubt: How Confronting Your Deepest Questions Can Lead to a Richer Faith“.
Christine Cain
Christine CainStofnandi A21 Campaign og Propel Women
Christine Caine er ræðumaður, aðgerðasinni og metsöluhöfundur meira en tólf bóka og rannsókna. Árið 2008 stofnuðu Caine og eiginmaður hennar samtökin The A21 Campaign sem berjast gegn mansali og hafa hlotið Mother Theresa Memorial verðlaunin fyrir starf sitt í baráttunni gegn mansali meðal flóttamanna. Þau stofnuðu einnig Equip & Empower, þjónustu sem hvetur fólk til að lifa í þágu Jesú, og Propel Women, sem styður konur um allan heim til að lifa tilgangsríku lífi með Guði. Þjónusta þeirra hefur einnig stofnað þrjár Zoe kirkjur í Evrópu, sem breiða út fagnaðarerindið og þjóna þeim sem eru í viðkvæmastri stöðu á óvissutímum. Hún er höfundur „Don't Look Back: Getting Unstuck and Moving Forward with Passion and Purpose.“
David Ashcraft
David AshcraftFramkvæmdastjóri Global Leadership Network
David Ashcraft er forseti og forstjóri Global Leadership Network. Hann er einnig stofnandi og forseti The Advantage, samvinnuverkefnis um forystu sem leiðbeinir og hvetur presta í Pennsylvaníu. Sem aðstoðarprestur LCBC kirkjunnar í Pennsylvaníu í 32 ár aðstoðaði David við að auka vikulega meðalkirkjusókn frá 150 manns í 22.000.
Gabriel Salguero
Gabriel SalgueroFramkv.stj. National Latino Evengilical Coalition og prestur hjá The Gathering Place
Gabriel Salguero er prestur í The Gathering Place, fjölmenningarlegum söfnuði í Orlando, Flórída. Salguero er einnig forseti og stofnandi National Latino Evangelical Coalition, bandalags nokkurra þúsunda evangelískra safnaða í Bandaríkjunum. Salguero hefur setið í ráðgjafarnefnd Hvíta hússins um trúarleg málefni og hefur verið nefndur einn af fremstu evangelísku leiðtogum af Suður-Ameríkuuppruna í Bandaríkjunum af New York Times, CNN Español og NBC Universal. Að auki hefur forysta hans í málefnum tengdum menntun ungra karlmanna og umbótum í afplánunarkerfinu verið tekin fyrir af Discovery Channel og Oprah Winfrey Network.
Stephanie Chung
Stephanie ChungFyrrv. vaxtarstjóri hjá The Wheels Up
Stephanie Chung kemst á blað sem fyrsti Ameríkaninn af afrískum uppruna og annar kvenkyns framkvæmdastjórinn sem stýrir stóru einkaflugfélagi. Sem leiðtogi í flugmiðasölu veltir hún árlega 1 milljarði dollara og notar nú 30 ára reynslu sína til að þjálfa aðra í sölu og forystu. Chung situr í stjórn Make-A-Wish og vinnur með æðstu þjóðaröryggisleiðtogum í gegnum Business Executives for National Security, þar sem hún hjálpar til við að leysa sum af flóknustu öryggisáskorunum Bandaríkjanna. Hún er afkastamikill höfundur og hafa verk hennar verið þýdd á 60 tungumál. Nýjasta bók hennar heitir "Ally Leadership: How to Lead People Who Are Not Like You."
Jon Acuff
Jon AcuffINC Top 100 leiðtogafyrirlesari; metsöluhöfundur
Jon Acuff hefur átt 10 bækur á metsölulista New York Times, þar á meðal nýjasta bók hans, „All It Takes Is a Goal: The 3-Step Plan to Ditch Regret and Tap Into Your Massive Potential.“ Þegar hann er ekki að skrifa er hann á sviði sem einn af 100 bestu leiðtogafyrirlesurum INC. Hann hefur talað til hundruð þúsunda manna á ráðstefnum, í háskólum og fyrirtækjum um allan heim, þar á meðal FedEx, Nissan, Microsoft, Lockheed Martin, Chick-fil-A, Nokia og Comedy Central. Hann hefur einnig aðstoðað sum af stærstu vörumerkjum heims við að segja sögu sína, þar á meðal The Home Depot, Bose og Staples.
John C. Maxwell
John C. MaxwellStofnandi Maxwell Leadership Group
John C. Maxwell hefur varið lífi sínu í að hjálpa fólki. Markmið hans er að auka virði leiðtoga sem margfalda virði til annarra. Í þessari viðleitni sinni hefur hann stofnað mörg samtök, skrifað meira en 90 bækur sem hafa selst í 38 milljónum eintaka, komið sex bókum á metsölulista New York Times, þar á meðal einni í fyrsta sæti, þjálfað meira en 5 milljónir leiðtoga í 180 löndum og stofnað stærsta þjálfunarfyrirtæki í heimi. Business Insider kallaði hann helsta leiðtogasérfræðing Bandaríkjanna og INC tímaritið tilgreindi hann sem vinsælasta leiðtogasérfræðing heims. Maxwell hefur hlotið Horatio Alger verðlaunin og Mother Teresa verðlaunin fyrir hnattrænan frið og forystu frá Luminary Leadership Network. Hann er enn að vaxa, skrifa, halda fyrirlestra og skapa umbreytingaverkefni í Bandaríkjunum og um allan heim. John er fyrirlesari á GLS í sjötta sinn!

Kynningarmyndband

DAGSKRÁ

Tími
Dagskrárliður
8:20
Húsið opnar (Háteigur á 4. hæð á Grand Hótel)
9:00

Setning ráðstefnu
- CRAIG GROESCHEL  -  Leiðinlega leiðin til árangurs
- DAVID ASCHCRAFT - Breyttu spurningunni

 10:20

Kaffihlé

  10:40

- STEPHANIE CHUNG  -  Að leiða fólk sem er ekki eins og þú
- GABRIEL SALGUERO  -  Líf í band-strikinu

12:00

Hádegishlé (60 mín.)

13:00

- JON ACUFF  - Frestunarárátta: Fjögur leyfi sem færa þér lífið sem þú hefur beðið eftir

- JOHN MAXWELL  -   Skildu eftir þig arfleifð sem skiptir máli

14:40

Kaffihlé

15:00

- CHRISTINE CAINE  - Tak á hugsjóninni

16:00
Lok ráðstefnu
* tímasetningar geta breyst lítillega
Image

160 sæti - 16 borð

Tryggðu þér pláss við borð þar sem þú hlýðir á fyrirlestra og færð tækifæri til að ræða innihald þeirra með hópnum þínum. Við hvetjum til eflingar samfélags og samvinnu.

Image

Ný sýn

Leyfðu efni ráðstefnunnar að móta huga þinn gagnvart viðfangsefnum þínum og ástríðu svo þú getir deilt sýn þinni með teyminu og tekið flugið!
Image

Grand dagur

GLS leiðtogaráðstefnan 2025 verður haldin að þessu sinni í Háteig á 4. hæð á Grand Hótel. Tilvalið er að mæta með hópnum sínum og styrkjast saman. Við lofum einnig góðri stemmningu og aðstæðum fyrir minni hópa eða einstaklinga. Ráðstefnan verður frá 9 til 16:30 með hádegishléi.

Samtökin GLS Íslandi

Blönduhlíð 26
105 Reykjavík
Kt. 440609-1040
[email protected]